|
|
 |
Að tjalda er möguleiki sem æ fleiri kjósa að nýta sér. Ef fólk vill ráða sér sjálft er varla til einfaldari ferðamáti en að stinga niður tjaldhæl í guðsgrænna náttúruna.
Á tjaldsvæðinu sem tilheyrir Hótel Geysi geta náttúruelskendur og þeir ævintýragjörnu sem vilja vera frjálsir eins og fuglinn haft möguleika á að tjalda við jaðar hverasvæðisins með Geysi og Strokk í nokkurra metra fjarlægð.
Á tjaldsvæðinu er salernis- og þvottaaðstaða.
Sundlaug og heitir pottar eru í nokkra metra fjarlægð sem og önnur aðstaða eins og söluskálinn þar sem hægt er að fá helstu nauðsynjavörur í útileguna. |
|
 |
|