|
|
 |
Í áranna rás hefur húsnæði Hótel Geysis tekið breytingum tímans með fólkinu sem þar starfaði. Haukadalur er einn þekktasti sögustaður okkar Íslendinga bæði að fornu og nýju. Hverfum aðeins til þessara aldar.
Bóndasonur frá Haukadal , Sigurður Greipsson, sem stundað hafði nám í íþróttafræðum á erlendri grundu, kom heim árið 1927 og stofnaði íþróttaskóla á föðurleifðinni, sem hann rak ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bjarnadóttur samfellt í fjörutíu og þrjú ár.
Hann byggði skála á einni hæð, en þar voru fimm herbergi og salur, sem bæði var notaður til kennslu og sem matstofa. Það sumar nýttist þeim Sigurði og Sigrúnu vel. Fyrsta sundlaugin var byggð, grafið var niður á kísilklöppina, og veggir hlaðnir úr mýrarhnausum. Skólinn var settur þá um haustið með tólf nemendum. Alls munu um 900 nemendur hafa sótt skólann meðan hann starfaði. Margir kunnir glímukappar, lögreglumenn og framámenn ungmennafélaga komu úr skóla þessum , en glíma var jafnan höfuðnámsgrein. Brátt var byggð álma austan við upphaflega skálann, þar sem hún stendur enn. Steinhúsið var byggt á árunum 1944-1946
og var það síðan fellt inn í stórhýsi það sem nú hýsir veitingasali hótelsins.
Í dag er Geysir rekið sem glæsilegt heilsárshótel af hjónunum Má Sigurðssyni, (yngsta syni þeirra Sigurðar og Sigrúnar), og Sigríði Vilhjálmsdóttur af miklum metnaði og hugsjón.
Við leggjum mikinn metnað í að þú viðskiptavinur góður sért jafn ánægður við komu sem og við brottför, og að dvölin hér hafi verið þér til yndisauka. |
|
 |
|