|
|
 |
Einn mikilvægasti hálendisvegurinn-Kjölur byrjar 10 km frá Geysir.
En hvað er hálendið? Steinar, hrjóstugur gróður, auðn, endalaust ekkert. Og svo allt í einu skærblá hálendisvötn, sýn inn í tignalega fjalladali og á jökla. Algjör ró og friður, vart er hægt að binda fegurðina í orð. Það getur hver sá sem að hefur séð sólina setjast á hálendinu tekið undir.
Um 100 km frá upphafi Kjalvegar eru Hveravellir. Hveravelli er eins og nafnið gefur til kynna hverasvæði. Þar er boðið upp á gistiaðstöðu á tjaldsvæði og í skála. Það ætti enginn að sleppa laugarferð á Hveravöllum. |
|
 |
|