|
|
 |
Boðið er upp á klukkustunda útreiðatúra með leiðsögn frá Hótel Geysi. Farið er framhjá hverasvæðinu inn í Haukadalsskóg,
sem rómaður er fyrir sína einstöku náttúrufegurð.
Riðið er yfir ár, fram hjá kirkjunni inn í Haukadalsskógi, eftir einhverjum af mörgum skemmtilegum reiðstígum
þar sem að útsýnið yfir sveitina, jöklana og hverasvæðið er stórkostlegt.
Leiðsögumenn okkar þekkja svæðið vel og kunna margar skemmtilegar sögur sem tengjast sveitinni.
Hægt er að lengja ferðina um eina klukkustund eða fleiri þar sem að
hver auka klukkustund kostar 1.000.- ísl.kr á manninn. (skoðið
verðlistan)
Ekki missa af þessari!
|
|
 |
|