|
|
 |
Margmiðlunarsýning
Hvernig lítur eldgos út? Hvað er svona heillandi við norðurljósin? Hvað sést í íshelli? Getur maður fundið fyrir jarðskjálfta án þess að jörðin hreyfist?
Svarið við þessum og ýmsum öðrum spurningum færð þú í Geysisstofu. Í nútímalegu margmiðlunarsafni um náttúru Íslands geta gestir fundið og upplifað kraftinn sem einkennir náttúru þessa lands, og kynnst fyrirbærum á borð við eldgos, hlaup, jarðskjálfta, norðurljós og íshelli.
Á efri hæð er byggðasafn þar sem getur að líta hluti sem notaðir voru fyrr á öldum við ýmiskonar iðju og fróðleik um sögu Haukadals frá landnámi til okkar daga, allt frá Ara fróða til Íþróttarskólans.
Boðið er upp á afslátt fyrir stærri hópa, námsmenn og eldri borgara.
Hótel Geysir hlaut nýsköpunarverðlaun Ferðamálaráðs fyrir Geysisstofu árið 2000. |
|
 |
|