|
|
 |
Skálholt er einn merkasti sögustaður landsins og eitt elsta höfuðból kristinnar á Norðurlöndum.
Árið 1056 varð Skálholt biskupssetur og var þar stofnaður skóli til þess að mennta presta. Síðan hefur Skálholtsskóli starfað og aðlagða sig að þörfum samfélgsins á hverjum tíma.
Í Skálholti er að finna minjar frá öllum tímabilum Íslandssögunnar. Kirkja var reist í Skálholti stuttu eftir kristintöku en als hafa þar staðið um tíu kirkjur.
Í dag starfar Skálholtsskóli sem mennta- og fræðslusetur kirkjunnar. Haldin eru kóramót, tónleikar, málþing, ráðstefnur, listasýningar og kyrrðardagar svo eitthvað sé nefnt.
Skálholtsskóli býður upp á menningartengda ferðaþjónustu, leiðsögn um staðinn og á sunnudögum er messað í Skálholtskirkju. |
|
 |
|