|
|
 |
Ísland er fullt af áhugaverðum jarðfræðilegum fyrirbærum en jafnframt má finna marga áhugaverða sögulega staði. En það getur verið erfitt að finna stað sem er jafnvígur á báðu eins og Þingvellir eru.
Það er varla hægt að útskýra jarðfræðilega sögu staðarins í stuttu máli. Hér mætast Evrópu og Ameríku platan, hægt er að segja að maður standi með annan fótinn í Ameríku og hinn í Evrópu. Þetta er heillandi hugleiðing.
Eins er heillandi að hugsa til þess að í árhundruð þjónuðu Þingvellir hlutverki sínu sem Alþingi landsmanna. Þarna hittist alþýða landsins kvað upp dóma og festi lög.
Hvort sem að maður hefur áhuga á sögu, jarðfræði eða hvorugu þá eru Þingvellir staður sem vert er að sækja heim. |
|
 |
|